|
|
|
|
Heim English Myndaalbum Egyptaland Hafid samband Desember 2001 Frettir November 2001 Frettir Oktober 2001 Frettir September 2001 Frettir April 2002 Mai 2002 Juni 2002 Juli 2002 Agust 2002 September 2002 Oktober 2002 November 2002 December 2002 Januar 2003 Februar 2003 Mars 2003 April 2003 |
31.12.04
Hjálpum fórnarlömbum flóðanna í Asíu Eins og ég skrifaði hér að neðan var árið 2004 gott fyrir mig og mína, en ekki er hægt að segja það sama ef litið er á heiminn í heild. Stríð og náttúruhamfarir, núna síðast flóðin í Asíu þar sem eyðileggingin er svo gífurleg og fjöldi látinna svo himinhár að maður getur ómögulega gert sér almennilega grein fyrir því. Ég vil því ljúka þessu herrans ári 2004 með því að biðja Guð að vera með þeim og styrkja þá sem eiga um sárt að binda og gefa það að árið 2005 komi með bjartari tíma. Og til ykkar allra, endilega hjálpið fórnarlömbunum með því að hringja í 907 20 20 og gefa þannig 1000 kr. til hjálparstarfs Rauða Krossins vegna flóðanna. Íslenskt sjónvarp... Þar sem ég er komin með ADSL þá þýðir ekki annað en að eyða gamlárskvöldi fyrir framan íslenskt sjónvarp á netinu...er núna að hlusta á erlenda fréttannálinn...spurning hvort maður bíði eftir skaupinu. Maður á örugglega ekki eftir að fatta neitt, hef ekki séð skaupið í mörg ár!! Og verðlaunin fyrir skilti ársins 2004 fara til...... Skilti þetta er að finna á sjúkrahúsi, í herbergi hliðina á vökudeildinni!! Mjög svo traustvekjandi!! Í öðru sæti var þetta skilti: en þetta skilti var einnig tilnefnt til verðlaunanna 'mesta peningasóun ársins 2004' en sigurvegarinn þar var marmaratorgið/gangstéttin fyrir framan hryllingsríkisbáknið Mugamma - ætli sá sem tók ákvörðun um það eigi ekki frænda sem flytur inn marmara, manni dettur það svona helst í hug! Já, svona var Egyptaland árið 2004...Marmari á götum úti og skilti á óskiljanlegri ensku. Jæja, maður hefur þó a.m.k. eitthvað til að hneykslast á og gera grín að...það vantar ekki! Nú árið er á enda... Ótrúlegt en satt, bara 2 1/2 tími í að 2005 gangi í garð hér í eyðimörkinni. Þegar ég lít yfir árið 2004 þá hefur það bara verið gott ár hjá mér og mínum og ansi viðburðaríkt, þó að það ætli nú ekki að enda vel. Endalaus veikindi hér, ég búin að vera heima veik frá vinnu alla vikuna. Fór á sunnudaginn og var með gífurlegan hósta þannig að ég kíkti til læknisins í háskólanum og hún gaf mér sprautu og sendi mig beinustu leið heim í nokkurra daga hvíld með heilan poka af lyfum til að dæla í mig! Hafði séð hana vikuna áður, þá með hálsbólgu og hita og þegar hitinn var bara hærri þarna á sunnudaginn leist henni ekkert á mig. Og í dag vaknaði Omar með hita og er búinn að vera voða slappur...þannig að 2005 byrjar í eintómum veikindum, ekki gaman það, en vonandi er það enginn fyrirboði um hvernig árið verður. En fyrir utan veikindi hefur árið endað vel hjá mér. Ísmael stækkar og dafnar og er bara að verða skemmtilegri og skemmtilegri með hverjum deginum. Það jafnast sko ekkert á við hláturinn í honum, þá hlýnar manni sko um hjartaræturnar!:-) Og hann kom með þrjár nýjar tennur svona til að kveðja árið, þannig að þær eru orðnar fimm talsins! Skólinn endaði vel hjá mér þessa önnina, en ég var í kúrs sem heitir Economic Development of the Middle East og er einn af skyldukúrsunum mínum. Hafði nú ekki mikinn áhuga og bjóst við hundleiðinlegri önn en það varð nú ekki raunin. Kennarinn var bara svo stórkostlegur og skemmtilegir samnemendur að þetta var einn af bestu kúrsunum sem ég hef tekið og ég held bara að ég hafi lært heilmikið! Og ekki var ég ósátt við útkomuna en ég fékk einkunina núna í vikunni og var hún A- :-) Vinnan hefur bara gengið vel-a.m.k. frá mínu sjónarhóli, veit ekki hvað yfirmennirnir segja um allt þetta veikindafrí mitt síðan ég byrjaði aftur í september, hmmm... En svo sem ekkert voða merkilegt að gerast þar, en gott að vera komin með föst laun aftur, en ég var í launalausu orlofi frá enda janúar til september (greitt fæðingarorlof hér er aðeins þrír mánuðir). Bókabúðin gengur hins vegar stórvel og við Mandy erum hæstánægðar og á fullu að betrumbæta. Salan hefur farið fram úr öllum vonum og Desember var metmánuður hingað til! Við sem áttum von á að seinni hluti desember yrði frekar lélegur og vorum alveg búnar að sætta okkkur við það en síðan hefur þetta bara gengið rosa vel...þar sem meirihluti viðskiptavinanna eru útlendingar og þeir fara mikið heim til sín í frí yfir jól og áramót áttum við von á að það væri lítið af viðskiptavinum á svæðinu en það var greinilega bara vitleysa hjá okkur. Á eftir að fá endanlegar tölur, set þær kannski inn fyrir Margréti Vilborgu síðar, hehe. En hinir mánuðirnir hafa allir endað í ca. 12.000 punda veltu - kannski ekki stór upphæð á íslenskan mælikvarða en við erum ánægðar og stefnum auðvitað enn hærra! Erum búnar að vera á fullu að kaupa bækur í desember. Mandy var í Bandaríkjunum fyrri hluta mánaðarains og keypti fullt þar og síðan höfum við verið að kaupa hér og þar. Líka verið að reyna að betrumbæta og gera huggulegra og ætlum að byrja nýja árið á að bæta við tímaritarekka og tveimur bókahillum til viðbótar, þannig að stefnan er sett á að fylla þær af bókum. Síðan ætlum við að setja skiptiborð á baðið - verðum eini staðurinn í Cairo örugglega með skiptiborð!! Það ætti að draga viðskiptavini til okkar! A.m.k. get ég nýtt mér það, búin að fá nóg af að skipta um bleyjur á baðgólfinu! Við höfum verið með fullt af starfsfólki eða heila fjóra núna fyrir utan okkur tvær...sem sagt erum orðin stærðarinnar fyrirtæki:-) Þetta eru aðallega námsmenn í hlutastarfi en þau hafa reddað okkur alveg, sérstaklega þegar Mandy var í Bandaríkjunum þar sem ég get lítið unnið út af hinni vinnunni minni, hehe. Fjölskylduheimsóknir voru líka með besta móti á árinu, Anna Dóra kom í janúar til að hitta Ísmael og síðan komu pabbi og mamma í mars og í júlí/ágúst var stórferðin heim til Íslands sem var alveg yndisleg. Og stefnan er tekin á að endurtaka þetta 2005. Pabbi og mamma koma vonandi núna í janúar og síðan kemur Anna Dóra vonandi í apríl og auðvitað stefni ég á að heimsækja klakann einhvern tímann í sumar (best að fara að ræða þau plön við Omar, hehe!) Síðan hittir maður vonandi á Jóhönnu og Mohammed þegar þau koma núna í byrjun árs að heimsækja fjölskyldu Mohammeds og ekki væri amalegt að fá fleiri í heimsókn...enginn lesandi á leið til Egyptalands árið 2005? Húsamálin mjökuðust áfram á liðnu ári og var síðasta skoðunarferð farin núna í desember ásamt vini Omars sem er arkitekt og ætlar að hjálpa okkur að skipuleggja húsið að innan. Annars er búið að byggja húsið, komnar hurðir og gluggar og búið að mála og alles. Vantar sem sagt bara að klára garðinn og svona smotterí og síðan auðvitað heilmikil vinna fyrir okkur að gera það klárt að innan. Spurning hvað á eftir að gerast í þeim málum á árinu 2005! Það hefur verið mikið barnalán í kringum mig hérna í Cairo á liðnu ári-mér kennt um að hafa byrjað á því í lok ársins 2003 en veit nú ekki hvort að ég samþykki það! Hápunkturinn í þeirri deild fyrir mig var að sjálfsögðu þegar Karima litla fæddist í byrjun september og við Mandy vorum á spítalanum og fengum að sjá hana um leið og komið var með hana út af skurðstofunni (en hún var tekin með keisara). Reyndar var þessi spítalaferð minnistæð fyrir fleira en bara fæðingu Karimu, þarna rákumst við Mandy á 'skilti ársins'- en samkeppnin í Cairo er ansi hörð (set mynd inn á eftir) og einnig urðum við vitni að því þegar hinn nýbakaði faðir þurfti að leita í öllum vösum eftir pening til að borga svæfingarlækninum áður en komið væri út með konuna hans! (Hvað ef hann hefði ekki verið með pening??? ÞAÐ er stóra spurningin!!) Ég óska ykkur öllum gleðilegs nýs árs og þakka það gamla og góða. Hlakka til að sjá ykkur sem flest á nýju ári. Guð veri með ykkur! 24.12.04
Gleðilega hátíð Óska ykkur öllum gleðilegrar hátíðar. Vonandi njótið þið hennar í rólegheitum í faðmi fjölskyldunnar. Hellidemba! Ja hérna, held ég hafi bara aldrei orðið vitni að eins mikilli dembu í Cairo og akkúrat núna! Segi nú bara að það er eins gott að það rigni ekki oft svona...er að horfa á Survivor Reunion og rigningin truflar sendinguna í gegnum gervihnattadiskinn! Ekkert smá fúlt:( Ætli ég verði ekki að reyna að ná endursýningunni á miðnætti... 9.12.04
Veikindi Það hafa verið eintóm veikindi hér þessa vikuna. Ísmael er búinn að vera veikur síðan á sunnudag og núna er ég orðin veik! Lítið verið um vinnu hjá mér þessa vikuna vegna þessara veikinda, fór á sunnudagsmorgun og náði í efni til að vinna við heima og fór síðan aftur augnablik seinnipartinn á þriðjudag - en þetta voru þeir tímar sem Omar gat verið heima með Ísmael. Annars er ég bara búin að vera heima með Ísmael, greyið búinn að vera ansi veikur. Með kvef, sýkingu í auga, háan hita (næstum 41 þegar hann var hæstur) og síðan er hann líka að taka tennur sem bætir ekki ástandið. Og núna er ég komin með kvef og í hálsinn og eitthvað í augun. En vonandi batnar okkur sem fyrst. |