|
|
|
|
Heim English Myndaalbum Egyptaland Hafid samband Desember 2001 Frettir November 2001 Frettir Oktober 2001 Frettir September 2001 Frettir April 2002 Mai 2002 Juni 2002 Juli 2002 Agust 2002 September 2002 Oktober 2002 November 2002 December 2002 Januar 2003 Februar 2003 Mars 2003 April 2003 |
29.7.02
Augnaðgerð Ég var mikið að spá í að fara í svona leiser-augnaðgerð í fyrra og fór til augnlæknis á Íslandi sem gerir svona aðgerðir en síðan fluttist ég hingað og ekkert varð úr neinu og ég lengi búin að ætla að athuga þessi mál hér í Egyptalandi en eins og venjulega þá er ég alltaf svo fljót að koma mér að verki og ekkert gerðist fyrr en bara núna. Við Ómar fórum áðan til augnlæknis hér sem gerir svona aðgerðir (sá besti í Egyptalandi eftir því sem mér hefur verið sagt) og hann kíkti á mig og sagði það sama og læknirinn heima: að ég sé fulkominn kandídat fyrir þessa aðgerð. Og ég ætla því bara að skella mér í aðgerðina og á tíma á mánudaginn! Sem sagt allt að gerast mjög skyndilega núna! Síðan er verðið á aðgerðinni hér líka mjög gott, ekki nema í kringum 115.000 krónur (miðað við tæplega 300.000 krónur á Íslandi í fyrra). En ég læt ykkur vita hvernig gengur í næstu viku. Mánudagur, mánudagur Annars er mánudagur hér sá dagur sem við förum alltaf í mat til tengdó og bróðir Ómars mætir þangað líka með konunni sinni og litlu dúllunum þeirra Ibrahim og Abdullah (4 og 1 árs). Hálfbróðir Ómars mætir síðan einstaka sinnum en er yfirleitt á svo mikilli hraðferð að það er bara hæ og bæ og síðan er hann þotinn í burtu. En þetta er sem sagt svona einn fastur punktur í lífinu hjá okkur hér í Cairo. 26.7.02
Helgargaman Jæja, þá sit ég hér og nýt helgarinnar eftir stutta og þægilega vinnuviku. Við Omar ákváðum að skella okkur í bíó í gær og sáum Men in Black II, ágætis della til að skemmta sér yfir. Síðan skelltum við okkur á nýlegt kaffihús sem ég sá skrifað um á netinu: Friends Café. Þar er verið að herma eftir Friends þáttunum, en kaffihúsið er í svipuðum stíl og kaffihúsið í þáttunum. Síðan eru sjónvörp þar sem sýndir eru gamlir Friends þættir. Ósköp skemmtilegur og huggulegur staður. Aftanákeyrslur Ég held að fólk hér hljóti að vera eitthvað stressað núna yfir sumarið, eða kannski er bara svo heitt að það er alltaf að flýta sér í loftkælingu ef það er ekki á loftkældum bílum? A.m.k. þá var keyrt aftan á okkur bæði fimmtudagskvöld og í gærkvöldi, sem sagt tvo daga í röð! Ómar var einn í bílnum á fimmtudaginn og ég fékk náttúrlega algjört sjokk, en sem betur fer ekkert of alvarlegt. Síðan þegar við vorum á leiðinni á Friends Café í gær þá var aftur keyrt aftan á okkur (leigubíll) á nákvæmlega sama stað á bílnum og kvöldið áður (hornið á skottinu farþegamegin). Sem betur fer ekki mjög harður árekstur og engin slys á fólki eða neitt slíkt. Bíllinn fer síðan í viðgerð í næstu viku og verðum við þá bílllaus í fjóra daga:-( 23.7.02
Frí, frí, frí! Jæja, ég sit heima í makindum í dag og nýt þess að vera í fríi, það er nefnilega 23. júlí: byltingardagurinn og þar með opinber frídagur hér í Egyptalandi:-) Frábært tækifæri til að liggja í leti og slappa af og ekki amalegt ad fá stutta vinnuviku: vinna í tvo daga og fá frí og síðan aftur bara í tvo daga áður en helgin byrjar (fyrir þá sem ekki vita þá er helgin hér föstudagur og laugardagur). Nýjar myndir! Þar sem maður hefur góðan tíma í dag þá er ég að vinna í því að setja inn myndir og ný myndaalbúm. Nú eru sem sagt komnar upp myndir úr pílagrímsferðinni og von á myndum úr Íslandsferðinni og kannski einhverjum fleirum líka. Endilega kíkið á myndaalbúmið. 20.7.02
Enn nýrri vinna hjá Ómari Eins og ég sagði frá síðast þá var Ómar ekki ánægður í nýju vinnunni sinni og var að leita að annarri vinnu. Það tók ekki langan tíma og í lok júní byrjaði hann í annarri nýrri vinnu hjá fyrirtæki sem heitir e-knowledge. Þetta er ekki forritunarvinna eins og sú vinna sem hann hefur áður verið í heldur er þetta meira farið út í sölu og markaðssetningu, en samt áfram tæknileg hlið á vinnunni, svona sambland. Þetta er lítið og frekar nýtt fyrirtæki (eins árs) og enn sem komið er líkar honum vinnan mjög vel og núna er hann alveg kominn á það að þetta sé hans lína, ekki bara að vera að forrita! Hann er samt líka að uppgötva hversu gott og óvenjulegt (a.m.k. í Egyptalandi) það fyrirtæki sem hann vann hjá áður var: mjög sveigjanlegt og góður andi. Þannig að þá eiginlega segja að hann hafi fengið smá menningarsjokk þegar hann fór að fara í viðtöl annars staðar og síðan að vinna annars staðar. Í framhaldi af þessari nýju braut á vinnumarkaðinum fékk Omar þá flugu í höfuðið að fara í MBA nám og er núna að sækja um styrk til náms í Bretlandi. Kemur í ljós með það snemma á næsta ári en ef af verður þá verður gaman að vera smá tíma nær Íslandi. Ég fæ alltaf póst frá Flugleiðum með nettilboð frá Bretlandi og finnst voða leiðinlegt að geta ekki bara hoppað upp í næstu vél þegar gott tilboð kemur. Og meiri vinna hjá mér Lærlingstíminn minn rann formlega út í lok júní en ég er enn að vinna á fullu. Var beðin um að vinna yfir sumarið og það hentar mér bara ágætlega þar sem við Ómar förum ekki í neitt sumarfrí (hann fær náttúrlega ekkert frí þar sem hann er nýbyrjaður í nýrri vinnu!). Þannig að ég mun eyða það sem eftir er af sumrinu í vinnu. Síðan er búið að bjóða mér stöðu sem ´editorial assistant´ frá og með 1. september þannig að ég verð áfram að vinna og vinna:-) Nám Hvað varðar námið þá fékk ég fyrir stuttu tilkynningu um að ég hefði fengið styrkinn sem ég sótti um en ég hef ákveðið að taka vinnuna frekar þar sem styrkurinn er bara u.þ.b. 1/3 af kostnaðinum yfir árið og ég þyrfti að vinna 18 tíma á viku. Betra að halda bara áfram í vinnu sem mér líkar vel og ef við verðum hér áfram þá get ég fengið ókeypis í skólann eftir ár sem starfsmaður í fullu starfi:-) Hef samt ekki alveg ákveðið hvort að ég sleppi skólanum alveg þetta árið eða taki einn kúrs á hvorri önn, það kemur bara í ljós, ég hef enn smá tíma til að pæla í þessu. Búin að vera í algjörri pásu frá arabískunni í tvo mánuði núna en fer líklega að byrja aftur, um leið og það er laus kennari í skólanum sem ég var í! En annars finnst mér bara ágætt að vera bara að vinna núna og taka lífinu með ró, maður verður svo þreyttur og latur í öllum hitanum! Skemmtun og enn meiri skemmtun! Félagslífið hjá okkur hefur verið nokkuð fjörugt upp á síðkastið. Þar ber helst að nefna óvænta afmælisveislu fyrir vin okkar þar sem farið var á kóreskan veitingastað í karaoke! Við leigðum okkur karaoke herbergi og sátum og sungum allt kvöldið! Þetta var ótrúlega fyndið og skemmtilegt! Fyrsta skiptið sem ég fer í karaoke og ætlaði mér sko ekki að syngja en síðan endaði ég bara sem aðalstjarna kvöldins (svona næstum því), söng held ég bara einna mest og við mikla ´lukku´ allra hinna (hmmmm? þið sem hafið heyrt mig syngja, haldið þið að þetta hafi vakið ´lukku´?;-) ) Þessa helgina fórum við upp á útsýnisstaðinn sem við fórum á eftir afmælisveisluna okkar og það var rosa gaman. Mun betra heldur en síðast enda veðrið fullkomið á kvöldin þessa dagana, um 29 stiga hiti og smá gola. Hvorki og heitt né of kalt! Og fersku ávaxtasafarnir eru hreint ólýsanlegir!:-) Við höfum líka verið að skella okkur í bíó. Besta myndin sem ég hef séð nýlega er ICE Age teiknimyndin, alveg stórkostleg og óborganlega fyndin! Mæli með henni! Kennari í heimsókn Uppáhaldskennarinn minn frá Bandaríkjunum var á ferð í Cairo fyrir stuttu ásamt vinkonu sinni og fórum við Ómar með þær út að borða. Það var æðislegt að hitta kennarann minn aftur og mikið að spjalla um. En því miður var veitingastaðurinn sem við fórum á ekki eins góður og við áttum von á (hann fékk mjög góð meðmæli) og þjónustan var fyrir neðan allar hellur. Kennarinn minn og vinkona hennar eru báðar grænmetisætur og við pöntuðum blandaða grænmetisrétti (svona þar sem þú pantar og færð smá af nokkrum réttum) og síðan kom bara í ljós að einn rétturinn var bara ekkert grænmetis heldur með kjöti af því að þeir áttu ekki lengur bara með grænmeti! Og þeir báðust ekki einu sinni afsökunar né bættu okkur þetta upp! Alveg ömurlegt. En þrátt fyrir þetta þá var kvöldið mjög skemmtilegt. Síðan náði ég að hitta þær aftur daginn áður en þær fóru og spjalla enn meira og fá meiri fréttir af gamla háskólanum mínum:-) |