Heim

English

Myndaalbum

Egyptaland

Hafid samband

Desember 2001 Frettir

November 2001 Frettir

Oktober 2001 Frettir

September 2001 Frettir

April 2002

Mai 2002

Juni 2002

Juli 2002

Agust 2002

September 2002

Oktober 2002

November 2002

December 2002

Januar 2003

Februar 2003

Mars 2003

April 2003

This page is powered by Blogger, the easy way to update your web site.


25.8.02
 
Auglýsi eftir síðustu þáttum The Amazing Race
Ég auglýsi hér með eftir einhverri góðri sál sem á síðustu þætti The Amazing Race (sería 2) á spólu, spólan sem mamma tók þættina upp á eyðilaðist víst og ég er alveg niðurbrotin manneskja (*táraflóð*). Uppáhalds þáttúrinn minn! (Meiri grátur og væl sem heyrist langar leiðir). Síðasti þáttur sem ég sá var þegar ´Itchy og Scratchy´ duttu úr leik og þar með bara fjögur lið eftir. Ef einhver lumar á þessum þáttum bara að hafa samband (eða við múttu ef þið þekkið hana) og við munum standa straum af öllum kostnaði við sendingu til Egyptalands! Ég bara VERÐ að fá að sjá restina!! HJÁLP!!!! Vill ekki einhver aumka sig yfir mig??????

24.8.02
 
Íslensk vika, arabíska, nýr vinur og heimilishjálp
Lífið gengur sitt vanagang hér, gerum lítið annað en þetta venjulega, bara að vinna, borða, og sitja fyrir framan sjónvarp eða tölvu. Ég fékk spólur frá mömmu um daginn þannig að ég er búin að liggja yfir þeim, búin að horfa á restina af Survivor og var alveg orðin háð The Amazing Race, en vantar seinustu þættina af þeirri seríu (eins gott að þeir séu á spólu heima hjá mömmu!! ;-) ). Það kom náttúrlega nammi líka með pakkanum, sem ég var auðvitað ekki lengi að klára, enda ekkert rosalega mikið. En ég óska sem sagt hér með eftir einhverjum til að aumka sig yfir mig og senda nammi til Egyptalands. Vantar alveg lakkrís hér. Og af einhverjum ástæðum er egypskt súkkulaði algjört ógeð, bragðast eins og eitthvað plast-gervi dæmi. Íslenskt nammi er sko langbest!!!:-) Síðan fékk ég nokkur tímarit líka, sem ég hef verið að glugga í mér til skemmtunar við og við. Sem sagt bara búin að vera ágætis ´íslensk´ vika hjá mér:-)
Arabískan lagast með hverjum deginum þó að ég sé ekki nógu dugleg að tala hana enda daglega umkringd enskumælandi fólki. En ég get vel bjargað mér og haldið uppi smá samræðum: við Ómar tökum stundum arabísku syrpur, þar sem við tölum ekkert nema arabísku saman. En þær endast nú aldrei meira en kannski eina kvöldstund, maður verður svo þreyttur! En á morgun byrja ég síðan aftur í arabískutímum þannig að vonandi kemst ég a gott skrið við það.
Við Ómar nældum okkur í nýjan vin um daginn, amerískan strák af pakistönskum ættum sem var á sama póstlista á netinu og ég. Hann er kominn til Cairo til að vera skiptinemi við AUC og við náðum í hann út á flugvöll og komum honum á heimavistina og kynntum honum fyrir Egypskum mat:-)
Síðan erum við Ómar líka orðin löt við heimilsverkin og búin að fá okkur heimilishjálp (aftur). Enda voða erfitt að þrífa í miklum hita: svitinn lekur allur niður andlitið á manni við minnstu áreynslu! En þessi nýja heimilishjálp kom nú eiginlega þannig til að þessi kona sem er núna nýja heimilishjálpin okkar og kemur og þrífur einu sinni í viku var að vinna fyrir vinafólk okkar, en missti þá vinnu (flutningar úr landi og þess háttar) og vantaði sem sagt fleiri heimili tl að þrífa og við vorum spurð hvort að við hefðum áhuga og þegar við fengum boðið svona þá kom letipúkinn upp í okkur og við ákváðum að slá til. Voða þægilegt verð ég að viðurkenna:-)


9.8.02
 
Leiseraðgerð
Jæja, þá fór ég í leiseraðgerðina á agunum á mánudaginn og nú get ég séð án gleraugna - ótrúlegt en satt! Áður var ég með -4,5 á vinstra auga og -1,5 á hægra auga. En allavega, ég fór á mánudagsmorguninn og beið heilllengi fyrst en síðan þegar ég fór loks inn í aðgerðina þá tók þetta mjög stuttan tíma. Ég var náttúrlega rosalega stressuð, ekki beint líkt mér að fara í aðgerð af fúsum og frjálsum vilja, ég er svo mikill aumingi þegar kemur að svona hlutum, en þetta gekk ótrulega vel - a.m.k. þegar ég hugsa svona eftir á:-) Þetta var alls ekki sárt, ég fékk náttúrlega dropa sem deyfingu og síðan fann maður bara þrýsting og pot og heyrði í leisernum, en enginn sársauki. Síðan þurfti ég að bíða smá tíma meðan aðgerðin var gerð á tveimur öðrum og síðan kíkti læknirinn á augun augnablik [og varð ekkert smá hneyksluð þegar læknirinn kom inn á stofuna með logandi sígarettu í hendinni!] og síðan fór ég bara heim með þau fyrirmæli að sofa í 3 til 4 tíma, og veitti ekki af. Sjónin var óskýr fyrst og þegar deyfingin fór að fara af varð ég rosalega næm fyrir ljósi og fékk þennan svakalega höfuðverk. Þegar ég kom heim gat ég bara alls ekki haft augun opin og fór beint í rúmið, tók verkjatöflur og náði þá loks að sofna. Var mun betri þegar ég vaknaði en enn smá viðkvæm fyrir ljósi og sjónin smá óskýr en síðan þá hefur þetta verið að lagast. Ég fór ekki í vinnuna daginn eftir, átti erfitt með að fókusera og horfa á t.d. tölvuskjá og var að hafa smá áhyggjur af þessu en fór til læknisins um kvöldið og fékk þá að vita að þetta væri mjög eðlilegt og gæti tekið eina til tvær vikur þar til að þetta lagaðist að fullu. Hjá lækninum gekk hins vegar allt vel og ég gat lesið neðstu línurnar á báðum augum - alveg ótrúlegt! Síðan hefur sjónin eða þ.e.a.s fókusinn þegar ég les eða horfi á tölvuskjáinn, verið að batna dag frá degi. Það eina sem ég hef síðan þurft að gera er bara að passa augun mín, t.d. ekki nudda augun fyrstu þrjá dagana, og síðan er ég með augndropa sem ég þarf að nota í viku. Alveg ótrúlega einfalt og ég er yfir mig ánægð að hafa drifið mig í þessa aðgerð:-)

1.8.02
 
Verslunarmannahelgin
Þá er Verslunarmannahelgin gengin í garð heima á íslandi og þó að það sé engin verslunarmannhelgi hér þá er ég nú samt komin í helgarfrí og í fyrsta skiptið síðan ég fluttist til Egyptalands að fara í ferðalag innanlands! Við Ómar ætlum að fara til Alexandríu á morgun og vera yfir eina nótt. Við erum að fara þangað til að hitta/vera með ættingjum Ómars en frænka hans sem býr í Bandaríkjunum og hefur ekki komið til Egyptalands í fjögur ár. Ég náði nú að hitta hana og krakkana hennar á sunnudaginn en það var frekar stutt þannig að við ætlum að elta alla fjölskylduna til Alexandríu og erum búin að leigja sumarhús fyrir helgina.


Hitabylgja!
Það er búið að vera rosalega heitt þessa vikuna, yfir 40 stiga hiti og upp í a.m.k. 46 stig eftir því sem ég hef heyrt. Hins vegar er aldrei sagt opinberlega (í veðurfréttum) að hitinn sé meira en 45 stig þar sem lögin segja til um að vinna falli niður fari hitinn upp í 46 stig eða meira. Sem sagt, aldrei opinberlega meira en 45 stiga hiti! Og síðan var ég líka að komast að því að það eru til lög sem banna einkaaðilum að vera með hitamæli til að mæla hitastigið úti! Allt er nú til segi ég bara!!


Viltu að ég viti afmælisdaginn þinn?
Ef svarið er já þá er bara að fara á þennan tengil og skrá það inn og þá verð ég minnt á afmælið í gegnum e-mail.