|
|
|
|
Heim English Myndaalbum Egyptaland Hafid samband Desember 2001 Frettir November 2001 Frettir Oktober 2001 Frettir September 2001 Frettir April 2002 Mai 2002 Juni 2002 Juli 2002 Agust 2002 September 2002 Oktober 2002 November 2002 December 2002 Januar 2003 Februar 2003 Mars 2003 April 2003 |
30.11.04
Konur gegn limlestingu Mótmælið umskurði kvenna með því að skrá ykkur á undirskriftalistann: http://www.konurgegnlimlestingu.com 29.11.04
Hvernig er nafnið þitt skrifað í híróglífri? Er það ekki eitthvað sem þig hefur alltaf langað að vita? Alveg viss um það og nú geturðu fengið svarið á netinu! Og ef einhvern langar í men með þessu þá er nú ekkert mál að redda því gegn vægu þjónustugjaldi, hehe. Afhending yrði þá í lok janúar/byrjun febrúar þegar foreldrarnir eru búnir að heimsækja mann. Ef þið hafið áhuga get ég alltaf kannað verðið:-) 28.11.04
Kominn tími til að ferðast... Samkvæmt þessu korti hef ég bara komið til 10% landa í heiminum, ekki nógu gott. Þarf að fara að bæta úr því. Sem betur fer er Omar búinn að lofa systur sinni ferð einhvern tímann á næsta ári (þar sem hún þurfti að fara í stóra aðgerð á baki. Hann lofaði henni ferð þegar hún væri orðin góð og auðvitað fer hann ekkert án mín!!) og ég geri mér vonir um að þá nái ég að auka landafjöldann...þarf eigiinlega að plata hann til að fara til margra landa í ferðinni, kannski taka Sýrland, Jórdanía, Lebanon hringinn...hmmm En hér er sem sagt kortið af þeim löndum sem ég hef heimsótt, 23 lönd alls: create your own visited country map 22.11.04
Ramadan og Eid Ramadan föstumánuðurinn og Eid-hátíðin í lok hans eru nýyfirstaðin. Það var ansi mikið stress í gangi hjá mér í Ramadan, leikskólinn hans Ísmaels lokaði nefnilega TVEIMUR tímum fyrr í Ramadan þannig að ég var á þvílíku spani á milli vinnunnar og leikskólans. Reyndi að fara extra snemma af stað svo að ég gæti komið snemma í vinnuna og þar af leiðandi farið aðeins fyrr til að ná í Ísmael aðeins of seint en samt ekki alltof seint af leikskólanum. Síðan brunað heim til að undirbúa matinn til að borða við sólsetur! Það skemmtilega var hins vegar að það var fullt af matarboðum, bæði í fjölskyldunni og hjá vinum og maður var alltaf að hitta fólk og borða góðan mat:-) Og að fá Omar svona snemma heim á daginn var ekki amalegt heldur! Eid hátíðin var hins vegar mjög fín og ekkert stress þar (nema smá hjá mér dagana tvo á undan að versla á fullu, hehe, en það var bara stuð! Var að versla fram yfir miðnætti!! Algjör Þorláksmessustemmning). Á fyrsta deginum fórum við í nýja sumarhúsið hennar tengdó sem er um 60 km fyrir utan Cairo. Það er ekki alveg fullklárað og þetta var í fyrsta skiptið sem ég sá það og leist bara vel á. Hún er meira að segja að gera sundlaug í garðinum!! En öll stórfjölskyldan var þarna samankomin og það var mjög gaman. Ísmael skemmti sér vel með hinum krökkunum og við fórum með hann á róló og þetta var bara yndislegt:-) Daginn eftir var meira af því að vera með fjölskyldunni í rólegheitum, borða góðan mat og hittum síðan líka vini okkar. Þriðja daginn þurfti Ómar að fara aftur í vinnuna en við Ísmael vorum heima saman. Nú býð ég bara eftir næstu Eid hátíð í janúar en þá verða pabbi og mamma vonandi í heimsókn frá Íslandi:-) Og ég má nú ekki gleyma að minnast á gjafirnar! Við opnuðum pakka að kvöldi fyrsta dagsins og ég fékk m.a. nýjan gemsa! Voða ánægð með það:-) Fékk líka fullt af fötum (sem ég fór og keypti með Ómari) og tösku. Síðan gaf ég Ómari föt og 'flash memory' fyrir ferðatölvuna hans. Ísmael fékk flesta pakkana og er ég búin að segja frá þeim á síðunni hans: www.barnaland.is/barn/15343/vefbok.html Íslendingur í Cairo Loksins kominn annar Íslendingur hingað, reyndar tímabundið en það er sama. Ágúst Flygenring (www.semsagt.net ef þið viljið lesa pælingar hans og fréttir hans frá Cairo) er að basla við arabískuna hér fram að jólum. Vildi svo skemmtilega til að hann kom til landsins rétt fyrir afmælið hans Ísmaels þannig að Ísmael fékk smá pakka frá afa og ömmu og Önnu Dóru frænku og hann kom meira að segja og afhenti þá á sjálfum afmælisdeginum en hann kom þá við í bókabúðinni minni þar sem ég var að vinna. Síðan hefur tíminn bara liðið allt of hratt og ekki haft tækifæri til að hitta hann aftur en vonandi bætum við úr því sem fyrst. Íslenskt veður í Cairo Mér fannst ég bara vera stödd á Íslandi í dag, veðrið var þannig! Svona týpísk íslensk sumarrigning, grátt yfir öllu (skýjað) og rok og rigning sem lemur mann í framan! Verst að maður á aldrei von á svona hérna í eyðimörkinni að maður var náttúrlega alls ekki viðbúinn, ég ekki með neina yfirhöfn og í opnum skóm! Verður forvitnilegt að sjá hvað rigningin endist lengi... 17.11.04
|