|
|
|
|
Heim English Myndaalbum Egyptaland Hafid samband Desember 2001 Frettir November 2001 Frettir Oktober 2001 Frettir September 2001 Frettir April 2002 Mai 2002 Juni 2002 Juli 2002 Agust 2002 September 2002 Oktober 2002 November 2002 December 2002 Januar 2003 Februar 2003 Mars 2003 April 2003 |
7.9.04
Vinna, vinna, vinna... Það er búið að vera nóg að gera síðan ég kom aftur til Cairo. Við Mandy höfum verið á fullu að gera arabískubækurnar og erum búnar að skila þremur af okkur en eigum eftir að klára þá fjórðu. Það verður byrjað að nota fyrstu þrjár á fimmtudaginn! Verður spennandi að sjá hvernig þær reynast. Sú fjórða verður hins vegar ekki notuð fyrr en síðar í haust, á annarri önninni, þar sem um er að ræða bók fyrir samræðutíma. En vonandi náum við nú að klára hana fljótlega. Við höfum hins vegar verið ansi uppteknar líka að undirbúa opnum bókabúðarinnar okkar! Já, fyrir ykkur sem ekki heyrðuð fréttirnar þegar ég var á Íslandi þá fengum við Mandy þá flugu í hausinn í maí þegar við vorum að gera arabískubækurnar að opna bókabúð með notuðum bókum en við erum báðar miklir bókaormar. Við ákváðum að láta slag standa og byrjuðum undirbúning á fullu með því að kaupa bækur og leita að húsnæði. Hlutirnir hafa síðan verið að smella saman smátt og smátt yfir sumarið og við opnuðum The Bookspot and Café í morgun!!! Jamm, ég er sem sagt orðin bókabúðareigandi! Við seljum notaðar bækur á ensku - af öllum gerðum - og síðan erum við líka með smá kaffihorn þar sem boðið er upp á drykki og heimabakað bakkelsi. Búðin er á Road 9 í Maadi, sem er ein aðalverslunargatan í hverfinu sem við búum í (og Magnús Ísfeld á einmitt veitingahús í sömu götu, en fyrir þá sem ekki kannast við hann þá getið þið lesið um hann í bókinni Insjalla eftir Jóhönnu Kristjónsdóttur.). Þetta er mjög fín staðsetning og við búnar að vera á fullu að standsetja...og gengið á ýmsu. Eins og þið hafið kannski heyrt af fyrir sögum þá er ekki mjög gaman að eiga við iðnaðarmenn í Egyptalandi, en þetta hefur reddast að mestu (með góðri hjálp eiginmanna okkar og mágs Mandyjar á stundum) og við opnuðum í dag þó að enn eigi eftir að ganga frá ýmsum smáatriðum, t.d. var málarinn að koma áðan til að klára smotterí sem varð eftir og smiðurinn á líka eftir að koma og klára smotterí og síðan áttu borðin eftir að koma og við náðum ekki að raða alveg rétt í hillurnar (á eftir að setja í stafrófsröð eftir höfundi innan bókaflokka) - en þetta er allt að koma. Miðað við hvernig þetta leit út um helgina þá er nú ótrúlegt að við skulum yfir höfuð hafa náð að klára þetta mikið og raunverulega opna í morgun! En vonandi á þetta allt eftir að ganga vel hjá okkur...kemur í ljós á næstu mánuðum, en það eru margir mjög spenntir yfir búðinni okkar - höfum hitt ótrúlegasta fólk sem hefur beðið í ofvæni eftir opnuninni eða heyrt um búðina á einhvern hátt. Nú verður þetta fólk bara að drífa sig og eyða pening hjá okkur!! Og það er meiri vinna í gangi hjá mér...ég er nefnilega byrjuð aftur í vinnunni minni hjá AUC Press en ég byrjaði í síðustu viku (1. september). Það eru mikil viðbrigði að vera komin aftur og ég er svona að átta mg á hlutunum aftur og koma mér inn í þá og ná áttum... Og þar sem ég er komin í vinnuna þá er Ísmael komin á leikskóla og gengur bara vel, honum virðist líka ágætlega. Meira um það á síðunni hans www.barnaland.is/barn/15343 Íslandsferð Voða er maður lengi að koma sér til að skrifa ferðasöguna...þetta gengur ekki! En þessar fimm vikur sem ég var á Íslandi voru alveg yndislegar, gaman að vera í faðmi fjölskyldunnar og hitta vini og vandamenn. Ég var að mestu bara í Reykjavíkinni að hitta fólk og slappa af, en fór þó í dagsferð með fjölskyldunni í Veiðvötn og var það mín fyrsta ferð þangað og mjög gaman. Að komast úr hitanum í Cairo var alveg æðislegt - fannst veðrið bara fínt á Íslandi (nema dagana sem rigndi) - gott að fá smá ferskt loft! Og íslenskur matur og íslenskt nammi AAAHHHH - held ég hafi drukkið meira en ársskammt af Egils Appelsíni á þessum fimm vikum! Ísland hefur lítið breyst, mest allt virtist við það saman. Aðallega breytingar hjá fólki, börn og flutningar og svoleiðis. Það var voða gaman að hitta stelpurnar úr mömmuklúbbnum og leyfa Ísmael að hitta krakkana þar. Og sjá hvað Viktor Már og Malín María hafa stækkað (börn vinkvenna minna) og hitta nýju börnin: Guðrúnu Dís og Björt Von. Ég var þrjár vikur án Omars og var það mjög fínt þó að við Ísmael söknuðum hans auðvitað...en það gaf okkur þó tíma til að hitta meira fólk án þess að drepa hann úr leiðindum! Var fyndið þegar Omar síðan kom - greyið Ísmael var nú ekki alveg sáttur, grét á fullu í bílnum á leiðinni frá flugvellinum þegar hann sá pabba sinn. En seinna um nóttina var hann alveg búinn að taka hann í sátt - þurfti bara smá tíma til að átta sig. Og ég verð nú bara að segja að það er alveg yndislegt að geta bara labbað út úr húsi með kerruna og farið í göngutúra í ýmsar áttir með hann Ísmael - mig vantar það svo mikið hérna, en fæ það nú þegar við flytjum í nýja húsið. Þessar fimm vikur voru ótrúlega fljótar að líða...bara búnar áður en ég vissi af. Fegin að hafa þó getað verið þennan tíma... Og vonandi læt ég sjá mig aftur á klakanum á næsta ári:-) Á meðan megið þið endilega skella ykkur til Egyptalands og kíkja við hjá mér;-) |