|
|
|
|
Heim English Myndaalbum Egyptaland Hafid samband Desember 2001 Frettir November 2001 Frettir Oktober 2001 Frettir September 2001 Frettir April 2002 Mai 2002 Juni 2002 Juli 2002 Agust 2002 September 2002 Oktober 2002 November 2002 December 2002 Januar 2003 Februar 2003 Mars 2003 April 2003 |
31.10.03
Hann er kominn!! Litli prinsinn er kominn!! Hann fæddist fimmtudagskvöldið 23 október kl. 20:18 að staðartíma. Endaði með því að vera tekinn með keisara. Hann var 3600gr (rúmar 14 merkur) og 50cm og hefur fengið nafnið Ismaíl. Hann er algjör dúlla og við foreldrarnir alveg í skýjunum. Við vorum á spítalanum fram á sunnudag og síðan komu pabbi og mamma frá Íslandi á mánudagskvöld. Hér eru nokkrar myndir af dúllunni: 22.10.03
Nýjasta bumbumyndin Hér er síðan nýjasta bumbumyndin, tekin fyrir tveimur dögum: Minni síðan á albúmið þar sem eru fleiri myndir. Nágrannakynni Ég kynntist fyrsta nágrannanum mínum í gær, ótrúlegt en satt! Kominn tími til eftir rúm 2 ár myndi ég segja, er það ekki? En var sem sagt á leiðinni út á rölt og var að bíða eftir lyftunni (þvílík leti að labba ekki niður stigann) og dyrnar að einni íbúðinni á stigaganginum voru opnar því það er verið að vinna í henni (mála og svoleiðis) og konan sem býr þar kemur og er eitthvað að afsaka draslið sem hefur myndast út af þessu og síðan byrjar hún bara að spjalla og býður mér inn upp á drykk og smá spjall, voða huggulegt. Þannig að ég sat þarna smá stund og spjallaði...hún hafði greinilega lengi viljað tala við mig en bara aldrei þorað og ekki vitað hvort hún ætti að tala ensku eða arabísku eða hvað (en við sátum þarna og spjölluðum bara á arabísku, maður verður að nota tækifærin sem gefast til að æfa sig!). Virkar mjög fín kona, líklega rúmlega þrítug og á þrjú börn. En fyndið að ég hef aldrei talað við neinn hérna þessi rúmu tvö ár þannig að það er fínt að vera búin að kynnast núna a.m.k. einum nágranna:-) fæðingarorlof Jæja, þá er ég loksins komin í fæðingarorlof...síðasti vinnudagurinn var á fimmtudag þannig að ég er bara búin að vera að dunda mér heima síðustu daga. Farið í langa göngutúra og gert hitt og þetta sem þurfti að gera:-) Svolítið skrýtið að vera bara ein heima en líka bara ágætt þegar maður venst því...smá afslöppun og rólegheit...eða þannig....fyrir stóru átökin! Annars er krílið ósköp rólegt og virðist ekkert vilja koma út af sjálfsdáðum. Læknirinn minn er alveg á því að áætlaður fæðingardagur hafi verið 11. okt þannig að ég er skv. henni komin 41v4d í dag og verð líklega gangsett í kvöld ef ekkert hefur gerst þá (og mjög ólíklegt held ég að eitthvað gerist af sjálfsdáðum á næstu tímum). Á reyndar eftir að hringja í hana og tala við hana en þegar ég fór í skoðun í síðustu viku var þetta ákveðið og bara sagt að við Omar ættum að hafa samband í dag upp á að ákveða tíma í kvöld til að hitta hana á spítalanum. Þannig að það lítur út fyrir að ég verði komin með krílið í hendurnar einhvern tímann á morgun ef allt gengur vel. Annars fór ég í sónar á mánudaginn fyrir viku, hafði ekki fundið neinar hreyfingar að marki í sólarhring og varð náttúrlega áhyggjufull þannig að ég var send til að láta tékka á þessu. Sem betur fer var allt í góðu lagi og auðvitað byrjaði krílið á fullu að hreyfa sig um leið og sú sem var með sónarinn byrjaði að þrýsta á mallann og síðan stoppuðu lætin bara ekkert allan daginn! En það leit sem sagt allt vel út, krílið þokkalega stórt, áætlað rúmar 14 merkur þá (3600grömm) og konan hafði á orði að það ætti bara að vera komið út, ekki að vera ennþá í mallanum! En litla krílið greinilega ekki alveg á sama máli...það er náttúrlega svo rosa gott að vera í mallanum mínum!! Annars var mágkona einnar vinkonu minnar hér að eignast barn fyrir nokkrum dögum...allir að bíða eftir strák og síðan kom bara stelpa í heiminn! Þannig að kannski er litla krílið bara stelpa sem er feimin við að koma af því að allir búast við strák! HAHA - frekar ólíklegt;-) En þetta gerist stundum...og greyið mágkona vinkonu minnar, það trúir henni enginn þegar hún segist hafa átt stelpu! 11.10.03
Allt gott að frétta héðan úr Cairo þessa dagan...nóg að gera eins og alltaf og fer að styttast í að krílið sýni sig, en áætlaður fæðingardagur skv. sónar er 20 okt. (En sá dagur sem læknirinn minn vill miða við var í dag!! Er ekki alveg sammála og er ekkert að bíða eða stressa mig, enda ekki neitt að gerast og krílið í alveg jafn miklum rólegheitum og ég:-) ). Ég er enn að vinna en geri ráð fyrir að þessi vika verði sú síðasta...er að binda alla lausa enda og vonandi verður það ekkert mál á næstu dögum. Á morgun verður síðan 'kveðjuhádegisverður' mér til heiðurs á skrifstofunni...gaman, gaman:-) Ég er loksins að verða tilbúin með allt fyrir komu erfingjans...var farin að stressa vini mína ansi mikið og fór og verslaði með þeim um daginn. Þannig að nú erum við komin með rúm, skiptiborð og bílstól ásamt ýmsum smáhlutum og fatnaði. Síðan héldu nokkrar vinkonur mínar babyshower fyrir mig um síðustu helgi og þar fékk ég ýmsar gagnlegar gjafir, t.d. bleyjur sem eiga eftir að koma að góðum notum:-) Er líka búin að pakka niður í tösku til að taka með á spítalann þannig að vonandi er allt klárt þannig að við getum tekið því rólega þegar tíminn kemur:-) |