Heim

English

Myndaalbum

Egyptaland

Hafid samband

Desember 2001 Frettir

November 2001 Frettir

Oktober 2001 Frettir

September 2001 Frettir

April 2002

Mai 2002

Juni 2002

Juli 2002

Agust 2002

September 2002

Oktober 2002

November 2002

December 2002

Januar 2003

Februar 2003

Mars 2003

April 2003

This page is powered by Blogger, the easy way to update your web site.


23.9.03
 
Hér er allt fínt að frétta...taugin orðin betri, ég get a.m.k. labbað og hreyft mig nokkuð eðlilega, bara sárt stundum að liggja í rúminu og sérstaklega reyna að velta sér og ákveðnar hreyfingar. En ég fór í smá nudd hjá sjúkraþjálfara í síðustu viku og það hjálpaði rosalega mikið og fer ég aftur á morgun. Sú sem tók mig í nudd er sú sama og er með óléttuleikfimina og Active Childbirth tímana og hún var svo góð að troða mér inn þó að allt væri í raun fullt hjá henni og síðan hringdi hún í mig daginn eftir til að tékka á mér...alveg rosalega indæl. Sagðist ekki sætta sig við að ég þyrfti að sætta mig við að þjást og hananú!! En sem sagt ég er orðin mun betri. Það helsta sem hrjáir mig þessa dagana er svefnleysi, á voða erfitt með að sofa...alltaf að vakna. Svaf nánast ekkert tvær nætur í röð og bara gat ekki komið mér í vinnuna á sunnudag, var bara heima og náði að sofa svolítið yfir daginn ásamt þess að vinna smá heiman frá (svona til að friða samviskuna:-) ) Annars er yfirmaðurinn minn mjög skilningsríkur og ég hef leyfi til að stjórna vinnunni sjálf bara eftir líðaninni á hverjum degi.

Í öðrum fréttum er það helst að tengdó og frænka Omars sem er núna flutt inn með tengdó komu í mat á föstudaginn...held að það hafi verið í ca. fjórða skiptið sem tengdó kemur til okkar síðan við giftumst, við förum yfirleitt til hennar. En við ákváðum sem sagt að bjóða henni svo að hún gæti séð hvað íbúðin okkar er flott eftir breytingarnar:-) Ég eldaði náttúrlega rosa góðan mat þó ég segi sjálf frá og orðin það mikill Egypti í mér á stundum að ég gat náttúrlega ekki haft bara einn rétt...það gengur ekki í Egypskum matarboðum, þannig að ég var með súpu og síðan tvo aðalrétti og síðan eftirrétt auðvitað.

Hitti síðan nokkrar vinkonur á föstudagskvöldið í Survivorfíling...en nýja serían var að byrja á einni gervihnattastöðinni. Það var svaka stuð hjá okkur...eina vandamálið að engin okkar er áskrifandi að stöðinni og þeir opna bara í einn tíma á dag þannig að þeir lokuðu útsendingunni áður en þátturinn var búinn...þannig að ég varð að lesa hver tapaði og hver var sendur í burtu á netinu...en við skemmtum okkur samt vel yfir sjónvarpinu og hámuðum í okkur alls konar góðgæti með, nammi, namm.

13.9.03
 
Hér er mynd af nýju stofunni okkar. Fleiri myndir er að finna í albúminu okkar.
 
Nýjustu fréttir...
Jæja, það er orðið ansi langt síðan ég skrifaði síðast...tíminn bara flýgur og það er alltaf nóg að gera. Af mér og litla kút er bara allt fínt að frétta...hann stækkar og stækkar og bumban með;-) Bumban orðin heilir 111.5 cm miðað við eigin mælingu! Og ótrúlegt að hún eigi enn eftir að stækka!! En ég verð nú að viðurkenna að núna er ég aftur farin að finna fyrir því að vera ólétt...fæ brjóstsviða við og við og síðan er svo mikill þrýstingur á taugar í afturendanum að ég hálf kjaga um þessa dagana og sumar hreyfingar farnar að vera ansi erfiðar. En annars er bara allt í góðu lagi. Ég er líka búin að vera í óléttuleikfimi vikulega og í Active Childbirth tímum og það hefur verið mjög gagnlegt. Undirbúningur fyrir krílið er nú ekki kominn langt samt...á eftir að kaupa allt, en við bætum nú vonandi úr því sem fyrst:-)
Ég er enn að vinna og ætla að halda áfram eins lengi og ég get/treysti mér til. Í síðustu viku byrjaði nýr 'þræll' hjá okkur og mun hún taka yfir hluta af verkefnunum mínum þannig að ég er að kenna henni á allt þessa dagana. Líst annars vel á þessa stelpu, hún er egypsk og er kölluð Jessie, bara tveimur árum yngri en ég og mjög hress og skemmtileg:-) Er hins vegar hætt í arabískunni í bili. Síðasti tíminn var á fimmtudag. Er nýbyrjuð á sjötta stigi en mun bara halda áfram með það einhvern tímann á næsta ári eða síðar.
En aðalfréttirnar eru kannski framkvæmdagleði hjá okkur Omari. Við ákvaðum að við yrðum nú að klára ýmislegt í íbúðinni áður en krílið kæmi í heiminn þannig að við fengum iðnaðarmenn til að taka gestaklósettið alveg í gegn og síðan var parketið í stofunni rifið upp (farið að skemmast aftur vegna vatnsleka) og settum flísar í staðinn og létum þá líka setja sömu flísar á ganginn milli herbergjanna. Síðan var stofan og gangurinn málaður (en málningin var farin að flagna ililega af vegna vatnsskemmda). Þetta tók rúma vika og íbúðin öll á hvolfi. Síðan ákváðum við að drífa í því að klára að setja upp ljósakrónur og það var rafvirki hér í dag að klára það fyrir okkur. Fengum líka smið til að redda smotteríi fyrir okkur og hann kemur og klárar sitt einhvern tímann í vikunni. Fyrir utan smá pirring í garð hluta iðnaðarmannanna þá er ég bara mjög ánægð með þetta allt og yfir mig hrifin af lokaútkomuninni:-)