|
|
|
|
Heim English Myndaalbum Egyptaland Hafid samband Desember 2001 Frettir November 2001 Frettir Oktober 2001 Frettir September 2001 Frettir April 2002 Mai 2002 Juni 2002 Juli 2002 Agust 2002 September 2002 Oktober 2002 November 2002 December 2002 Januar 2003 Februar 2003 Mars 2003 April 2003 |
29.7.03
Stór bumba Eitt af því sem Ómar lærði í ferðinni okkar til Íslands var orðið 'bumba' og er uppáhaldssetningin hans þessa dagana 'stór bumba' ;-) Og það má nú segja að hún sé orðin ansi stór! Veit ekki hvar ég enda eiginlega, tæpir 3 mánuðir enn eftir af meðgöngunni! En ég prófaði að mæla bumbuna þegar ég var á Íslandi og þá var hún held ég 102 cm. Síðan þegar ég var komin tæpar 27v var hún 104 cm og núna (28v) er hún u.þ.b. 105 cm. Verður spennandi að vita hvað hún verður margir cm. í lokin! 28.7.03
Nýjustu húsfréttir Við Ómar fórum á laugardaginn að fá nýjar teikningar af húsinu okkar en það er búið að breyta aðeins hönnuninni að innan og meðal annars breyta eldhúsinu og stækka (hið besta mál þar sem við vildum hvort eð er breyta því). Við töluðum við einn af verkfræðingunum og hann útskýrði fyrir okkur breytingarnar og gaf okkur nánari upplýsingar um hitt og þetta og við ræddum það sem við viljum gera við hann o.s.frv. Síðan sagði hann okkur að húsið verður líklega tilbúið fyrir okkur til að fara að stússast í því að innan næsta vor!! En það er langt á undan áætlun og við erum auðvitað voða spennt. Við skoðuðum líka svæðið og það er heilmikið búið að gera síðan við vorum þarna síðast í febrúar með pabba og mömmu og byrjað að gera grunninn að húsinu okkar! Tók nokkrar myndir á nýju fínu vélina mína...af húsunum sem við skoðuðum í febrúar en eru núna mun nær því að vera tilbúin, búið að mála og svoleiðis og síðan er verið að vinna í umhverfinu og síðan auðvitað mynd af þar sem verið er að vinna í okkar húsi og raðhúsunum tengd við það. 27.7.03
WROOOOOMMMM Þetta er hljóðið sem heyrist á götum Cairo þessa dagana...ég er nefnilega aftur farin að leika prinsessu á götum Cairo JIBBÍ!!! Fékk egypskt ökuskírteini fyrir rúmri viku og hef nokkrum sinnum keyrt Echoinn okkar síðan þá...greyið Omar alveg við það að fá hjartaáfall í fyrsta skiptið...fannst ég eitthvað harkaleg við kúplinguna og hafði miklar áhyggjur af elskunni sinni (þ.e. bílnum, ekki mér;-) ) en síðan er ég búin að fara nokkrum sinnum á bílnum á ýmsa staði í borginni og alveg áfallalaust þannig að ég held að hann sé aðeins rólegri núna. Var sko allt annað þegar ég var að keyra síðast, á pínulítilli, eldgamalli druslu...skipti engu þó ég rispaði hana eða klessti smá (mjög algengt í Cairo þó svo að maður sé ekki að aka eitthvað svakalega....bara hluti af lífinu hér og svo sem skiljanlegt þar sem það virðast voða litlar umferðareglur gilda!)...en honum er sko ekki sama um fína bílinn okkar!! (og mér svo sem ekki heldur) og sem betur fer er nú ekki mjög mikið um rispur og dældir á honum, a.m.k. ekki miðað við tveggja ára notkun í Cairo;-) En sem sagt...ég fékk þessa stórkostlegu hugmynd laugardaginn fyrir viku að fara bara og redda ökuskírteininu einn tveir og tíu...ok, það gerðist ekki alveg einn tveir og tíu...stóðum bara 4 og 1/2 tíma á löggustöðinni...ÚTI nota bene...í örugglega yfir 40 stiga hita. Maður sá svitann leka af fólki og fötin öll orðin blaut!! Samt gat maður nú sem betur fer verið að mestu í skugga...en það er sama í svona hita. Og síðan var þetta endalaust flakk frá einum glugga til annars, redda þessum pappír, stimpla þetta, borga þarna o.s.frv. Hlupum meira að segja yfir á spítala í nágrenninu til að fá læknisvottorð...þurfti nú lítið að hafa fyrir því, borga smá pening og segja í hvaða blóðflokki ég er...engin var læknisskoðunin, en pappír fékk ég um það að heilsan væri í toppstandi!! Síðan átti ég víst að taka ökuprófið og var farin að bíða þar í einhverri röð en þá redduðu gæjarnir þar því bara þar sem ég var með gamla (útrunna) alþjóðlega ökuskírteinið mitt, og stimpluðu bara pappírana og wola...þurfti ekkert að taka próf. Síðan í lok dagsins gekk ég út af löggustöðinni með egypskt ökuskírteini og bros út að eyrum! Núna dreymir mig bara um eigin bíl, hehe:-) 18.7.03
Róleg vika Vikan var svona frekar róleg hjá mér, allavega í vinnunni. Er ALEIN á skrifstofunni! Allir aðrir í sumarfríi og ég hef hæðina út af fyrir mig. Ansi þögult og getur orðið einmanalegt. Ekkert voða mikið að gera hjá mér þannig að ég er bara að dunda mér við þau verkefni sem þarf að gera...ekkert stress eða vesen:-) Annars er ég bara búin að hafa það gott...hitti Nataliu vinkonu mína á sunnudaginn, rosa gaman að sjá hana aftur eftir fríið og fá fréttir af því sem var að gerast meðan ég var í fríinu. Síðan hittum við Natalía Morgane vinkonu okkar í fyrradag, en hún er að fara að flytja til Kanada þannig að þetta var nokkurs konar kveðjufundur. Í gærkvöld var síðan kvennafundur heima hjá mér og ég bakaði pönnsur við miklar vinsældir, nammi, namm:-) Helgina á síðan bara að taka rólega nema hvað við erum að fara á fund með verkfræðingi í sambandi við húsið okkar, en við eigum að fá betri teikningar af því og ætlum að segja honum hvaða breytingar við viljum gera (stækka eldhús, færa gestabaðherbergi á fyrstu hæð, og búa til geymslusvæði á 3 hæð). Í næstu viku verður síðan nóg að gera þar sem ég byrja aftur í arabískutímum (þarf víst að skrifa ritgerð um ferðina til Íslands, hmmm....verð að gera það á morgun) og síðan er ég að vonast til að geta byrjað í óléttuleikfimi. En ég verð enn ein í (vonandi) rólegheitum í vinnunni... Myndir úr ferðinni Þá er ég búin að setja nokkrar myndir úr ferðinni á netið. Set kannski fleiri þegar ég er búin að framkalla filmurnar mínar og kemst í skanna. En endilega kíkið á myndirnar í albúminu. Síðan verð ég vonandi duglegri í framtíðinni að setja inn myndir þar sem við Omar erum nú komin með fína stafræna myndavél:-) 15.7.03
Ferdasaga Tá erum vid Omar komin aftur til Cairo eftir tveggja og hálfs vikna frí í Barcelona og á Íslandi. Vid byrjudum á tví ad fara til Barcelona tar sem vid hittum Önnu Dóru systur mína. Vorum tar í trjár nætur og tvo daga og gerdum bara tetta typíska túristadót, keyptum mida í túristarútu og notudum til ad fara á tá stadi sem vöktu áhuga okkar. Fórum t.d. í La Sagrada Familia dómkirkjuna, Gaudi húsid og gardinn og audvitad á fótboltaleikfang FC Barcelona (spes fyrir Omar:-) ). Fórum líka í kláf (fyrsta skiptid fyrir Omar) og roltum Rombluna. Tetta var rosa fínt og Barcelona skemmtileg og falleg borg. Var bara svolítid of heitt, eda rakt réttara sagt, svipadur hiti og í Cairo en miklu meiri raki og hann fór rosalega í taugarnar á mér! En tetta voru mjög gódir dagar í Barcelona og gaman ad vera smá med litlu systur. Sídan komum vid til Íslands og áttum tvær mjög gódar vikur í fadmi fjölskyldunnar. Adalmalid hjá mér var nú bara ad vera med fjölskyldunni og hitta vini og vandamenn og gerdi ég heilmikid af tví og tad voru ymis matarbod sem vid fórum í tar sem vid gæddum okkur á mjög gómsætum mat, t.d. grilludu lambalæri (nammi, namm!). Fékk líka ad sjá nyju börnin í vinahópnum...algjörar dúllur! Fórum sídan í smá dagsferdir og syndum Omari Gullfoss og Geysi og sídan audvitad Tingvelli (tegar vid vorum komin tangad spurdi Omar allt í einu "og hvar eru rústirnar?" en audvitad átti hann von á ad sjá rústir tegar vid sögdum honum ad tetta vaeri stadurinn sem tingid hefdi verid á LOL!) og keyrdum líka hjá Stokkseyri og Eyrarbakka. Fengum mjög gott vedur í tessum ferdum en hættum vid tveggja daga ferd um Sudurlandid vegna rigningar og lélegs skyggnis. Tetta var bara allt of stutt heimsókn, ekki nema tvær vikur...en samt betra en ekkert. Sídan gistum vid eina nótt í Barcelona á leidinni til baka og komum til Cairo á föstudagskvöld og tegar vid komum heim beid okkar óvæntur gestur-lítil edla!! Fyrsta skiptid sem ég sé slíkt hér, en Omar hetjan mín var ekki lengi ad koma mér til bjargar og veida kvikindid í kassa:-) Annars takka ég bara öllum sem ég hitti í heimsókninni fyrir ánægjulegar stundir, tad var rosalega gaman ad hitta ykkur öll:-) |