|
|
|
|
Heim English Myndaalbum Egyptaland Hafid samband Desember 2001 Frettir November 2001 Frettir Oktober 2001 Frettir September 2001 Frettir April 2002 Mai 2002 Juni 2002 Juli 2002 Agust 2002 September 2002 Oktober 2002 November 2002 December 2002 Januar 2003 Februar 2003 Mars 2003 April 2003 |
25.6.03
Lítill heimur Já þetta er lítill heimur...stundum finnst mér Cairo vera alveg eins og Ísland...eða hverjar eru líkurnar á að sá sem taki við starfinu þínu heiti sömu ÞREMUR nöfnunum og þú? Þetta gerðist hjá Ómari (sem heitir nota bene Omar Farouk Ibraheem Kandeel fullu nafni, en yfirleitt dettur út þetta Ibraheem nafn (sem er nafn afa hans, Farouk er nafn pabba hans og Kandeel ættarnafnið). En sem sagt, sá sem tók við gamla starfinu hans Ómars núna heitir einmitt Omar Farouk Kandeel. Mjög sparnaðarsamt fyrir fyrirtækið...þurfa ekkert að gera ný nafnspjöld eða fá nýtt netfang...geta meira að segja látið sem að þetta sé bara sami náunginn svo lengi sem viðskiptavinurinn hefur ekki hitt Omar minn augliti til auglitis! Frekar furðuleg tilviljun þó verð ég að segja!:-) En Omar hefur svo sem vitað af þessum strák þar sem hann lærði líka tölvunarfræði hjá AUC, bara var ári eða svo á eftir Omari! Ætli það séu fleiri Omar Farouk Kandeel á svæðinu? Finnst það frekar ólíklegt.... Omar byrjaður í nýrri vinnu Jæja, þá var fyrsti dagurinn í nýju vinnunni hans Omars í dag. Hef nú ekki náð að spyrja hann hvernig var...en hann var voða flottur þegar hann lagði af stað í morgun í nýju jakkafötunum sínum! (versluðum nokkur um daginn...hann þarf nefnilega alltaf að vera í jakkafötum í nýju vinnunni). Heyrðist hljóðið samt vera ágætt í honum en hann fékk fullt af gestum bara strax eftir að hann kom heim þannig að ég á eftir að heyra nánar um daginn. En vonandi mun honum líka vel í þessari nýju vinnu. 21.6.03
Á leið í frí!!! Já það er sko farið að styttast í fríið...leggjum í hann á mánudag og förum þá til Barcelona og verðum með Önnu Dóru systur minni. Hlakka mikið til að hitta hana aftur og líka bara til að skoða borgina, það segja allir að Barcelona sé æðisleg! Síðan á fimmtudag komum við til Íslands og ég get ekki beðið! Við verðum tvær vikur á Íslandi og ég vonast til að hitta alla...endilega hafið samband þegar ég er komin til landsins. Síminn heima hjá foreldrum mínum er 557-6676 og við verðum líklega með eftirfarandi gsm númer: 8676084. úff, úff Úff...þetta var löng vika og allt á fullu...gott að vera komin í helgarfrí núna:-) Alveg brjálað að gera í vinnunni þar sem við erum bara tvö á skrifstofunni núna, einn nýhættur, 'þrællinn' farinn, og ein farin í sumarfrí. Og ég á leið í frí á mánudag þannig að það er fullt sem þarf að klárast áður...var meira að segja í vinnunni til kl. 11 að kvöldi á miðvikudag! Og síðan þarf maður að plana ferðina og allt...er að reyna að pakka í dag af því að ég hef engan tíma á morgun, allt of mikið að gera þá. Og síðan er mamma búin að vera að stressa mig með því að uppgötva að ég verð ekki með neina sjúkratryggingu á Íslandi...VISA tryggingin gildir ekki fyrir ferð til Íslands og ég virðist ekki geta keypt neina tryggingu hér því að tryggingarnar gilda ekki fyrir ferðir í 'heimalandi' (túlkað sem Ísland hjá mér þó svo að ég sé með lögheimili hér). Og á Íslandi fær mamma þau svör að ég eigi að kaupa tryggingu í því landi sem ég bý!! Sem sagt mjög flókið mál...botna ekkert í þessu sjálf. En það er nú ekki allt úff þessa dagana sem betur fer...líka búin að gera skemmtilega hluti. Fór á Khan el Khalili markaðinn með vinkonu minni á mánudag eftir vinnu og það var rosa gaman, ekki komið þangað í marga mánuði. Í gær var ég síðan með boð fyrir vinkonur mínar af e-mail listanum mínum fyrir útlendar konur búsettar í Egyptalandi. Allir komu með eitthvað að borða og það var fullt af góðum mat og eftirréttum og síðan sátum við og kjöftuðum og skemmtum okkur konunglega. 11.6.03
Vegabréfsáritun Jæja, tá er Omar loksins kominn med vegabréfsáritun til Íslands, nádi í vegabréfid hans med árituninni í danska sendirádid ádan. Tannig ad nú er allt tilbúid og vid bídum bara eftir ad 23 júní renni upp en tá leggjum vid í hann til Barcelona og sídan er stefnan tekin á klakann tann 26 júní. Hlakka til ad sjá ykkur:-) 3.6.03
Skýrsla Amnesty International um Egyptaland Hér geta þeir sem hafa áhuga lesið skýrslu Amnesty International um Egyptaland. 2.6.03
Íslendingar í Cairo!! Cairo fylltist af Íslendingum í dag en tad var heil rúta af íslenskum útskriftarnemum á ferdinni hér. Komu í dagsferd frá Kypur. Og á medal teirra var sonur vinkonu mömmu og var hann svo skemmtilegur ad hafa samband vid mig og ég skaust úr vinnunni til ad hitta hann vid egypska safnid (en tad er bara hinum megin vid torgid tar sem ég vinn). Reyndar tók mig smá tíma ad koma mér yfir á safnid tannig ad hópurinn hans var farinn inn en ég skellti mér tá bara med honum á safnid og hjálpadi honum ad elta uppi hópinn og hékk sídan bara aftan í hópnum tar til tau fóru í múmíuherbergid...ekkert smá uppá trengjandi! En tad var bara svo gaman ad hitta Íslending og fá ad tala íslensku og bara horfa á Íslendinga (já madur verdur snarrugladur eftir ad hafa ekki heimsott klakann i eitt og hálft ár!). Vona ad ég hafi ekki eydileggt safnferdina fyrir honum;-) En mér fannst tetta ædi og er alveg í skyjunum og bara svo ánægd ad hann skyldi nenna ad hafa samband vid mig og hitta mig. TAKK TAKK TAKK!!! lestrarhestur Já núna tegar önnin í háskólanum er búin (bíd bara eftir ad fá einkunnina fyrir ritgerdina og fyrirlesturinn og sidan audvitad heildareinkunnina) tá get ég loksins lesid mér til skemmtunar og er búin ad liggja yfir reyfurum sídan á föstudagskvöld (tegar ég kláradi ritgerdina). Las fyrst Elsku Poonu eftir Karin Fossum eda hvad hún nú heitir (norsk) og sídan James Patterson bók sem heitir The Beach House og er núna ad lesa Mordid í Altingishúsinu eftir Stellu Blómkvist. Sem sagt eintómar sakamálasögur og spenna...voda gaman hjá mér:-) Hálfnud! Samkvæmt sónar er ég komin 20 vikur í dag og medgangan tví hálfnud midad vid hina medal 40 vikna medgongu! Og skv. e-mailinu sem ég fékk frá babycenter í dag er krílid á stærd vid "stóra sæta kartölfu"–mjög áhugavert vægast sagt! En stóru fréttirnar eru tær ad eg er farin ad finna fyrir hreyfingum! Eda kannski rettara sagt farin ad fatta hvad eru hreyfingar;-) Fattadi tad i fyrrakvold og nuna hlakka eg bara til ad finna fleiri og fleiri hreyfingar:-) |