Heim

English

Myndaalbum

Egyptaland

Hafid samband

Desember 2001 Frettir

November 2001 Frettir

Oktober 2001 Frettir

September 2001 Frettir

April 2002

Mai 2002

Juni 2002

Juli 2002

Agust 2002

September 2002

Oktober 2002

November 2002

December 2002

Januar 2003

Februar 2003

Mars 2003

April 2003

This page is powered by Blogger, the easy way to update your web site.


30.1.03
 
Pundið á leið til helvítis!
Og það eru sko engar ýkjur! Pundið var gefið frjálst í vikunni og féll allsnarlega í kjölfarið og dollarinn sem kostaði áður opinberlega rúmlega 4,6 pund er núna kominn í 5,4 pund og í kringum 6 á svörtum markaði, en það er varla hægt að kaupa dollara nema á svörtum markaði, ef maður fer í banka þá er bara sagt nei, það séu ekki til dollarar! Held reyndar að fyrir nokkrum mánuðum gat fólk keypt 500 dollara gegn framvísun farseðils, en er svo sem ekki alveg viss. En þetta eru náttúrlega mjög slæmar fréttir fyrir okkur og ég sé bara verðið á flugmiða til Íslands fara upp úr öllu valdi! Og síðan á náttúrlega ansi margt eftir að hækka hér í kjölfarið á þessu gengisfalli :-(
 
Ný vinna!


Með upprópunarmerki núna og ekki spurningarmerki...já, Omar er að fara að byrja í nýrri vinnu. Leist mjög vel á tilboðið sem hann fékk og er búin að segja upp í vinnunni sinni og byrjar í nýju vinnunni 1. mars ef allt gengur að óskum. Nýja starfsheitið hans er "product specialist" og eins og ég sagði hefur þetta með sölu og markaðsmál að gera. Föst laun eru svipuð og hann er með núna en síðan er ársfjórðungslega greiðsla sem er mishá eftir hvernig gengur, ef allt er skv. áætlunum er það í kringum mánaðarlaun, en getur náttúrlega verið bæði minna eða meira. Síðan eru líka mun betri fríðindi, t.d. betri sjúkratrygging, bílastyrkur og gemsastyrkur. Og mikilvægast af öllu er náttúrlega að Omar er mjög spenntur fyrir starfinu og þetta er einmitt á þeirri línu sem hann vill fara að snúa sér að, þ.e. viðskipti í stað forritunar.

27.1.03
 
Frí, frí, frí!!!



Var að fá tilkynningu um það að það verður frí í vinnunni heila viku vegna næstu Eid-hátíðar* núna í febrúar! JIBBÍ! Hátíðin sjálf er 4 dagar en háskólinn ákvað bara að loka alla vikuna...sem sagt engin vinna vikuna 9-15 febrúar! Og þetta er einstaklega hentugt þar sem fjölskyldan mín er líklegast að koma að kvöldi 6. febrúar:-)

*Músilimar hafa tvær stórar hátíðir á ári. Eid al-Fitr eftir að Ramadan föstumánuðinum lýkur (3 dagar) og Eid al-Adha í lok pílagrímsferðartímans (4 dagar).
 
Ný vinna?


Omar er að fá atvinnutilboð í dag. Fór í fjögur viðtöl hjá fyrirtæki sem heitir Raya og þeir báðu hann um að koma á fund í dag til að ræða möguleikana á vinnu. Verður spennandi að sjá hvað kemur út úr því, en þetta er einhverskonar sölustarf (pre-sales). Skrifa meira þegar ég veit meira um þetta:-)
 
Sex, Gender, and Society


er tíminn sem ég tek í háskólanum þessa önnina og var fyrsti tíminn í gær. Kennarinn er frá Bandaríkjunum og heitir Cynthia Nelson, en hún er búin að vera næstum 30 ár hér í Egyptalandi! Mér líst bara mjög vel á þennan tíma, held að hann verði mjög áhugaverður. Það fyndna er samt að þó að það séu 12 eða 13 nemendur í bekknum þá eru þetta allt stelpur! Greinilegt að strákarnir hafa ekki mikinn áhuga á kynjafræðum! En ætli þetta verði ekki bara skemmtilegra fyrir vikið? Síðan er annað mjög skondið og það er að við erum 4 frá Norðurlöndunum! Já...hér í Egyptalandi! Engin smá tilviljun. Það eru nefnilega þrjár norskar stelpur í bekknum og það fyrsta sem ég heyrði þegar ég kom inn í skólastofuna var norska, mér til mikillar furðu! Og þær náttúrlega steinhissa að hitta fyrir Íslending í bekknum! Og eins og þetta sé ekki nógu mikil tilviljun þá spjallaði égörstutt við þá sem sat hliðina á mér og komst að því að hún vinnur hjá Fulbright hér í Egyptalandi! Ja hérna segi ég nú bara!

18.1.03
 
Hitt og þetta
Annars er nú ekki mikið nýtt að frétta hér. Er reyndar búin að fá myndirnar úr ferðalaginu sem við fórum með Önnu Dóru en vantar skanna til að koma þeim á netið. En ég er voða ánægð og fannst þær bara flottar...tók alveg fullt af myndum eins og ég er vön og alltaf að reyna að vera eitthvað listræn, eða með öðrum orðum, voða fáar myndir af fólkinu í ferðalaginu en fullt af styttum og landslagi og slíku. En vonandi finn ég skanna og get komið einhverjum á netið sem fyrst.
Við Ómar fórum að sjá Harry Potter á fimmtudagskvöldið, mynd nr. 2 það er að segja. Hafði ekki séð þá fyrstu og ekki lesið bækurnar en skemmti mér samt alveg ágætlega.
Síðan er ég svo heppin að vera í fríi í vinnunni á morgun, alveg æðislegt. Bandarískur frídagur, Baptism day. Hef ekki glóru hvað það er en er nokk sama, mótmæli engum frídögum!
 
Oftúlkun mbl.is
Var að kíkja á Moggann á netinu og last þar efstu fréttina um mótmæli gegn stríð við Írak víða um heim og var þessi mynd af mótmælum hér í Cairo (sem ég reynda vissi ekkert af og varð ekkert vör við en það er annað mál). Og síðan í texta fréttarinnar stóð þetta: "Þá komu andstæðingar stríðsins saman í Kaíró í Egyptalandi þar sem lögregla þurfti að hafa heimil á fólki eins og sjá má á meðfylgjandi mynd."




Ég get nú bara ekki orða bundist í sambandi við þessa mynd og þennan texta og verð bara að segja að þetta er þvílík oftúlkun og ekki verið að fara með rétt mál. Nú veit ég svo sem ekkert um þessi mótmæli en eitt veit ég og það er að myndin sýnir ekki að 'lögregla þurfti að hafa hemil á fólki"...það er oftúlkun! Mótmæli í Egyptalandi eru ekki frjáls og lögreglan fylgist mjög, mjög, mjög strangt með öllum mótmælum sem leyfð eru og oft er það þannig að það eru fleiri lögregluþjónar en mótmælendur og þeir slá hring utan um mótmælendur þannig að aðrir geta ekki gengið til liðs við mótmælin. Og það er það sem myndin sýnir...lögregluna mynda hring í kringum mótmælendur til að halda þeim í skefjum (hvort sem þess er þörf eða ekki) og passa að vegfarendur geti ekki komið og bæst í hóp mótmælenda.

13.1.03
 
Egypti í húð og hár

Já, ég er eiginlega bara orðin algjör Egypti, komst að því í dag þegar ég fór á aðalpósthúsið til að ná í pakka frá mömmu sem sat fastur í tolldeildinni. Endaði nefnilega á að prútta niður tollgjaldið og gerði það allt babblandi á arabísku! Egypskara gerist það nú varla held ég!!:-) Átti fyrst að borga 170 pund fyrir pakkann (fyrir utan dularfull gjöld sem eru mér hulin ráðgáta sem bætast alltaf ofan á) en endaði með því að borga aðeins 82 fyrir utan þessi auka gjöld. Annars var þessi ferð á pósthúsið algjört ævintýri...þvílík skriffinska! Alveg ótrúleg. Ég labbaði á milli þriggja skrifstofa og óteljandi starfsmanna til að fá þennan pakka í hendurnar. Og allir skrifuðu eitthvað niður eða stimpluðu á pappíra og reiknuðu út gjöld og bættu við gjöldum, en ég get ómögulega áttað mig á hvað í ósköpunum var í gangi og hvers vegna þetta var svona flókið. Held helst að þetta sé bara svona leikur til að skapa atvinnu!
 
My Big Fat Egyptian Wedding???

Við Ómar fórum í fyrrakvöld í bíó ásamt frænku Ómars og sáum "My Big Fat Greek Wedding" og skemmtum okkur konunglega enda bráðfyndin mynd. En það sem gerði hana enn fyndnari fyrir okkur var að það var næstum hægt að breyta þessu bara í "My Big Fat Egyptian Wedding," margt var svo rosalega egypskt. Enda svo sem margt sameiginlegt Egyptum og Grikkjum. En sem sagt stórskemmtileg mynd!:-)
 
Gleðilegt nýtt ár!



Gleðilegt nýtt ár öll sömul og takk fyrir allt gamalt og gott. Já, það er víst bara komið árið 2003 núna, mér finnst nú bara eins og það hafi verið í gær þegar allt vesenið í kringum árið 2000 var! Ja hérna hvað tíminn líður hratt! En það er víst komið enn eitt nýtt ár og ég búin í fríi, litla systir farin aftur til Spánar (sniff, sniff) og allt að komast í sitt eðlilega horf. Vinnan að komast á gott skrið og ég er byrjuð aftur í arabískunni og síðan byrjar háskólinn í lok mánaðarins. En hins vegar get ég látið mig hlakka til annarrar heimsóknar, en pabbi og mamma koma vonandi í heimsókn í byrjun febrúar!:-)