Heim

English

Myndaalbum

Egyptaland

Hafid samband

Desember 2001 Frettir

November 2001 Frettir

Oktober 2001 Frettir

September 2001 Frettir

April 2002

Mai 2002

Juni 2002

Juli 2002

Agust 2002

September 2002

Oktober 2002

November 2002

December 2002

Januar 2003

Februar 2003

Mars 2003

April 2003

This page is powered by Blogger, the easy way to update your web site.


18.10.02
 
Var að komast að því að það er í gangi alþjóðleg kvikmyndahátíð hér í Cairo þessa dagana og ég fór náttúrlega og skoðaði listann yfir þær myndir sem verið er að sýna og viti menn, bara fullt af íslenskum myndum! Átti nú ekki von á því! Það er verið að sýna Land og syni, 101 Reykjavík, Djöflaeyjuna, Engla alheimsins og tvær myndir sem ég þekki ekki, a.m.k. hringja ensku heitin engum bjöllum í höfðinu, en þessar myndir kallast Honour of the House og Seagull´s Laughter. Veit einhver hvaða myndir þetta eru? Sem sagt, aldrei að vita nema maður skelli sér í íslenskt bíó hér;-) Verst að þetta skuli samt vera akkúrat núna, einmitt þegar ég á að vera að vinna í ritgerð! TÝPÍSKT! Langar samt voða mikið að fara að sjá sænsku myndina Jalla, jalla...rámar í að hafa heyrt að hún sé góð.
 
Jæja, ég skellti mér náttúrlega í vinnuna í gær þar sem mér leið mun betur en daginn áður. Enginn hausverkur og enginn hiti, bara eins og leiðinlegt kvef. En síðan stigversnaði ástandið eftir því sem leið á daginn en sem betur fer náði ég nú samt að njóta hans. Fór á kaffihús með Natalíu og spjallaði um daginn og veginn og lá síðan kúrandi utan í Azizu á fundinum um kvöldið. Var nú samt hálf út úr heiminum á leiðinni heim um kvöldið og gat varla ekkert talað og er bara eiginlega algjörlega raddlaus núna! Ekki gaman það. En það er ágætt að það er komin helgi, þá get ég reynt að slappa af og koma mér í almennilegt stand. Þarf reyndar að einbeita mér svolítið (umm...eiginlega heilmikið!) að lærdóminum, en vonandi reddast það einhvern veginn.

16.10.02
 
Stórar fréttir héðan í þetta skiptið! Við Omar erum búin að festa kaup á raðhúsi!! Reyndar er ekki búið að byggja húsið enn, en það á að vera tilbúið í Desember 2005 þannig að við erum bara að plana fyrir framtíðina enda búinn að vera minn draumur að eignast garðJ Allt of lítið um útivistarsvæði og þess háttar hér í Cairo og garður því þeim mun mikilvægari!
En húsið er í svokallaðri “compound” rétt fyrir utan Cairo (20 mín.) við borg sem heitir 6. október borg (þeir eru voða hrifnir af því að nefna hluti eftir mikilvægum dagsetningum hér!!). Þetta er 3 hæða 245 fm raðhús og verður örugglega voða flottJ

Annars er bara búið að vera voða mikið að gera í lærdómi og vinnu og Omar gerir nú ekkert annað en að vinna og vinna og vinna – hálf ömurlegt! En ég held mér uppteknri í mínum lærdómi og félagslífi. Er sem betur fer búin að eignast góðar vinkonur hér sem ég hitti reglulega og við förum yfirleitt a.m.k. einu sinni í viku saman á kaffihús. Ein þeirra var reyndar að kvarta yfir því um daginn að það væri bara ekkert um hana á síðunni þannig að ætli ég verði ekki að segja ykkur allt um hana og sumar af hinum líka;-) Ég kynntist þeim öllum upprunalega í gegnum netið, en þegar ég kom til Egyptalands bjó ég til yahoo-grúppu fyrir erlendar konur búsettar í landinu eða að flytja hingað. Fékk þá hugmynd þegar ég gerði dauðaleitina að venjulegum (þ.e. svörtum) rúsínum en mig vantaði fólk til að spyrja ráða. En allavega, kjarninn í litla vinahópnum mínum eru þrjár stelpur: Natalia, Aziza og Lamía. Natalia er hálf sýrlensk og hálf slóvensk og er gift Egypta. Aziza er hálf amerísk og hálf egypsk og er í námi við AUC og óopinberlega trúlofuð egypska kærastanum sínum. Lamía er af egypsku bergi brotin en að mestu alin upp í Bandaríkjunum. Hún er nýflutt hingað, a.m.k. tímabundið, og er að vinna í bandarískum skóla hér. Og það vill svo vel til að hún er nágranni minn, ekki nema fimmmínúturgangur til hennar.J Ég missi reyndar af kaffihúsaferð með þeim í dag þar sem ég er bara heima veik, ekkert gamanL En ef ég verð við heilsu á morgun þá hitti ég vonandi Nataliu og Azizu eftir vinnu og förum á kaffihús og síðan á fund hjá kunningjakonu okkar.

Ég var í arabískupróf í gær, sem sagt hálfnuð með fjórða stigið. Gekk þokkalega en hefði mátt vera betur, búin að vera allt of löt að leggja orðaforðann á minnið og það var það sem dró mig hvað mest niður. Síðan þarf ég að skila ritgerð í háskólanum eftir tvær vikur þannig að ég þarf að fara að vinna í því.

7.10.02
 
Það er kominn nýr ´þræll´ í vinnuna hjá mér, en við notum það nafn fyrir þá sem gegna gamla starfinu mínu, það að vera ´lærlingur´ er náttúrlega bara þrældómur!!! Sú sem tók við starfinu mínu er egypskur nemandi við AUC og til að gera okkur lífið auðveldara þá vill svo vel til að hún heitir Mary, eins og ritstjórinn sem hætti í vor:-) Ekki hægt að ætlast til að við getum lært of mörg nöfn, held reyndar að ég hafi sprengt nafnaminniskvótann með mínu Sigrúnar-nafni;-)
 
Það virðist vera einhver óléttuveiki í gangi (ekki hjá mér samt!!!), rosa mikið af stelpum sem ég þekki ólettar. Tvær æskuvinkonur mínar (þið vitið hverjar þið eruð;-) ) eiga báðar von á barni á nýju ári. Þær töluðu báðar við mig í eigin persónu til að segja mér fréttirnar, önnur í gegnum síma, hin í gegnum ´tölvusíma´ og ég er sem sagt komin á þá skoðun að ef einhver vinkona vill endilega ´tala´ við mig þá eru það óléttufréttir;-) Hér í Egyptalandi eru tvær skólasystur Omars einnig ólettar (þær einu tvær sem eru giftar) og mágkona Omars er líka ólétt að sínu þriðja barni. Síðan eru systur margra vinkvenna minna óléttar. Greinilegt að maður er kominn á þann aldur að allir í kringum mann séu að eiga börn!!
 
Helgin var voða notaleg enda löng, heilir þrír dagar þar sem gærdagurinn var frídagur. Við Omar notuðum tímann til að slappa vel af, hitta vini og hafa það gott. Skelltum okkur tvö í bíó á laugardaginn og sáum myndina The Bourne Idendity med Matt Damon og hún var mjög góð og hörku spennandi. Vissum ekkert hvað við vorum að fara að sjá, völdum eiginlega bara myndina sem var verið að sýna í hverfinu okkar, þannig að hún kom okkur skemmtilega á óvart. Á föstudagskvöldið fórum við á markaðinn í gamla bænum, Khan el Khalili, ásamt tveimur vinkonum okkar: Fötmu og Sally. Hef ekki farið á Khan el Khalili síðan Maríanna var hér fyrr á árinu þannig að það var mjög gaman að fara aftur, mér finnst staðurinn alveg æði og rosalega sjarmerandi. Það hefur held ég bara aldrei verið jafn lítið af fólki á markaðinum þegar ég hef farið, samt svo sem alveg nóg af fólki, bara ekki troðningur og kremja eins og oft áður:-) Við röltum smá í búðir og ég fékk mér tvær nýjar útsaumaðar mussur og er rosa ánægð með það:-) Síðan settumst við niður á kaffihúsi við götuna og nutum útsýnisins og mannlífsins. Reyndar þá komu sölumenn og settu upp varning rétt hjá okkur sem algjörlega eyðilagði útsýnið - þetta voru teppi og þess háttar úr dýraskinni, sem er svo sem allt í lagi, en síðan voru uppstoppuð DÝR á sumum teppanna (OOOOOJJJJJJJ) plús fullt af alls konar uppstoppuðum dýrum fyrir þá sem vilja skreyta hús sín með dauðum skepnum! En verst af öllu var að við sáum fólk vera að kaupa teppin með uppstoppuðum refunum á miðjunni. Sé þetta fyrir mér á gólfi eða veggjum hjá þessu fólki. Þetta fór alveg með okkur, við áttum bara ekki til orð!!!

1.10.02
 
Flutt í helli!
Ég er þá búin að skrifa undir samning í vinnunni og því orðin ´editorial assistant´ núna, ekki lengur bara lærlingur! JIBBÍ! Og mínu nýja starfi fylgir mín eigin skrifstofa og ég flutti inn í hana í vikunni. Hún gengur reyndar undir nafninu ´hellirinn´ þar sem það er enginn gluggi til að tala um (þ.e.a.s. bara gluggi sem enginn birta kemur inn um af því að hann snýr bara ad næsta húsi). En ég lagfærði aðeins húsgögnin og sneri tölvunni við þannig að ég sný núna að dyrunum en ekki glugganum eins og fyrrum hellisbúi hann Matthew (frá Kanada). Sem sagt mun betri skrifstofa núna! Áður var ég bara frammi í móttöku þannig að þetta er mikill munur:-)
Reyndar var ég voða leiðinleg og vilid ekkert skrifa undir samninginn strax, enda er þetta ömurlegur samningur, ég fékk bara hálfgert áfall. Vantar öll aðalatriðin í hann (fyrir utan launin)!! Algjört frat! En víst ekki hægt að breyta, voða skrifstofubákn á svona stofnun, og ég er bara með aukabréf þar sem aðrir hlutir standa og á víst að fá annað líka...en ég bara hætti að nenna að ybba mig og skrifaði undir og vonast bara til að ég fái allt sem ég á að fá LOL!

Greyið hann Ómar
Greyið hann Ómar þrælar sér alveg út í vinnunni þessa dagana (engin yfirvinna greidd! ÖMURLEGT!!)...er rétt að skríða heim núna klukkan hálf tíu og í gær kom hann hálf ellefu, en hann mætir alltaf klukkan níu þar sem hann skutlar mér í vinnuna og ég á að mæta hálf níu. Ég er nátturlega voða ánægð að fá alltaf far þessa dagana (áður vann hann hinum megin í borginni og átti sem sagt enga leið með mér). Ágætt að losna við troðninginn í metró-lestinni á morgnana...líður ekkert sérstaklega vel þegar ég er kramin eins og sardína í dós!!

Sjónvarp og meira sjónvarp
Mér tókst náttúrlega aldrei að finna neinn sem tók um Amazing Race 2 þannig að ég las mér bara til um síðustu þrjá þættina á netinu og skemmti mér konunglega yfir því þó að ég hefði frekar viljað sjá spennuna með eigin augum. En nú bíð ég bara spennt eftir seríu nr. 3 sem mamma tekur vonandi upp á almennilegar spólur. Líka æst í að fá næstu Survivor seríu. Annars er ég nokkuð sátt við sjónvarpsefnið mitt hér, vantar bara þessa þætti og ER!! Já ég veit...ég er algjör fíkill;-)